Borgar.net » rant
DV fjallar um tekjur bloggara
Skarast hóparnir bloggarar og lesendur DV nægilega mikið til þess að nokkrum sé sama um þetta? Eru bloggarar raunverulega áhugaverður hópur, eða eru leikarar og fréttamenn á hinum miðlinum orðin þreyttar tuggur? Hvað á að sýna fram á með þessu?
Hvað með að birta tekjur einhverra sem raunverulega mundu vera forvitnilegir. Hvað hafa td. miðlar í laun – hversu mikla peninga hafa þeir af þeim fáfróðu og auðtrúa? Hvað hafa lyfjafræðingar í laun – er okrið að skila sér til starfsmanna? Hvað með pólska verkamenn, er verið að svína á þeim? Hvað með stéttirnar sem sífellt eru að berjast; kennarar, flugumferðarstjórar og mjólkurfræðingar – er einhver fótur fyrir þessu?
Ennfremur má benda á að ef DV vildu raunverulega hrista upp í mönnum ættu þeir að birta tekjur bloggara í einhverjum miðli sem bloggarar raunverulega lesa – til dæmis veflægt – en ekki í einhverjum pappírsgerðum leifum af miðaldahefðum. En það sést kannski best á þessu úrtaki, að blaðið er jafn hugmyndaríkt og það er vandað.
Kæra þjóðskrá
Í ljósi þess að þið eruð sekir um óafsakanlegan aumingjagang á stigi sem eingöngu ríkið fær að komast upp með, ætla ég að hjálpa. Ókeypis.
Gagnagrunns skipunin sem þið eruð að leita að er eitthvað á þessa leið:
ALTER TABLE `thodskra` MODIFY COLUMN `nafn` VARCHAR(250);
Ég legg svo til að þegar þið byggið textaskrárnar sem þið sendið út að þið varpið mannanöfnum yfir í 30 stafi og skaffið þannig bæði nýja rétta skrá og “samhæfða” skrá. Það má gera það einhvern veginn svona:
nafn ~= /^(S+).*?(S+)$/1 2/;
nafn ~= /^(.{1,32}).*$/1/;
Þetta er ekki það mikið mál að fólk þurfi yfirleitt að vita af þessu. Þjóðskrá Íslands getur ekki verið að setja landsmönnum reglur um það hvað má nefna börn á þeim forsendum að hún nenni ekki að skrifa svona marga stafi.
Ef þetta er skortur á þekkingu innanhús þá á einfaldlega að hringja í verktaka og fá þetta lagað. Ég mæli með Miracle.
Kristileg kaldhæðni
Hvernig var hún aftur, þessi gullna regla?
Hvaðan koma fordómar?
Í Morgunblaðinu í dag er pistill eftir unga konu, Unni Maríu Birgisdóttur, sem er í áfalli eftir að ráðist var hrottalega á mann hennar um helgina. Hún er eðlilega hrærð enda vægast sagt óþægilegt að verða fyrir, eða vitni að, jafn fólskulegum og tilefnislausum ofbeldisverkum.
Eins og eðlilegt er undir svona kringumstæðum spyr hún sig spurninga, og reynir að skilja hvað það er sem veldur því að svona lagað komi fyrir. En það er svo merkilegt, að sama hvað maður hugsar mikið – þá er ekkert gefið að maður komist að réttri niðurstöðu. Og það hefur hún heldur betur ekki gert.
Ég get vel skilið að hún sé reið, og sár, en eflaust má byrja á því að draga árásarmennina til saka sem einstaklinga áður en við förum að æsa upp kynþáttahatur gegn saklausum Pólverjum (eða fólki frá löndunum þar í kring) hér á landi.
Uppistaðan í greininni er lýsing fórnarlambsins á óhugnarlegum atburðum kvöldsis, en svo skipir um tón í niðurlaginu:
Fordómar gagnvart fólki af erlendum uppruna spretta m.a. af atvikum sem þessu. Maðurinn minn telur að þessir menn hafi verið frá Póllandi eða löndunum þar í kring. Hann metur það út frá tungumálinu sem þeir töluðu, [...], og útliti þeirra. Árásarmennirnir eru á bilinu 25-30 ára og ganga lausir og ættu því allir menn að hafa varann á. [...] Þetta hefði getað komið fyrir hvern sem er. Næst getur það verið þú.
Fordómar gagnvart fólki af erlendum uppruna spretta vitaskuld alls ekki af atvikum sem þessu. Það er þvættingur. Fordómarnir spretta af rökvillu eða rangri rökleiðslu þeirra sem lent hafa í óþægilegum aðstæðum. Grein Unnar er skólabókardæmi um þetta. Blaðaskrifin eru ekki til neins fallin, né ætluð, nema æsa upp kynþáttahatur í líkt þenkjandi eða áhrifagjörnum lesendum.
Ég leyfi mér að fullyrða að það heyri til undantekninga að Pólverjar gangi í skrokk á fólki að handahófi hérlendis. Ef einhverjir þeirra gera það, þá eru þeir ”einstaklingar” mjög lítil hluti þeirra sem slíkt gera. Flestir ofbeldismenn á Íslandi munu vera Íslendingar.
Hversu margir innflytjendur þurfa að þola ofbeldi af hálfu Íslendinga sakir uppruna síns? Það er kannski ekki fljótt á litið jafn tilefnislaust, a.m.k. ætti fórnarlamb af erlendu blóði auðvelt með að geta sér til um tilefnið.
Fordómar fæðast í vanþekkingu og hræðslu. Þeir stugga fólki í sundur frekar en að draga það saman. Hér er það einmitt samvinna við samfélag innflytjenda sem gerir það auðveldara að draga þá einstaklinga sem ábyrgir eru fyrir glæpnum til saka, líkt og samvinna við nýbúa tryggir þeim stað í okkar samfélagi þar sem einstaklingar mynda ekki hvöt til slíkra verka.
Það er móðgandi fyrir nýbúa að láta eins og þeir vilji eitthvað annað en það fjölskylduvæna samfélag sem við höfum búið í til þessa. Við höfum þá ekki alla að sök fyrir það sem einstaklingur gerir, frekar en við dæmum allar aðsendar greinar í morgunblaðinu vegna einnar misheppnaðrar.
Frábær tímasetning
Mér er mikið skemmt að komast að því að Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn kom fram í sjónvarpinu með kenningar sínar (eða lögreglunar, fyrst að hann kom þarna fram einkennisklæddur) um áhrif fulls tungls á menn og dýr. Þessu var rúllað á sama tíma og ég var að birta mína færslu.
Ég hefði sennilega misst af þessu ef ég hefði ekki rambað inn á vef Óla Gneista fyrir hreina tilviljun. Fann þetta svo á veftíví Vísis. Reyndar var ég nánast dáinn úr leiðindum yfir löngu árlegu þrasi yfir birtingu skattaálagningarskráa áður en ég komst í konfektið.
Það sem Geir, og aðrir lögreglumenn, eru að upplifa eru ekki áhrif tunglsins á hegðun. Heldur er þetta hugsanavilla sem orsakast af því að heilinn í okkur er hreinlega ekki til þess gerður að vinna hlutlaust við greiningu á stóru gagnasafni. Við erum með innbyggðar aðferðir til þess að stytta okkur leið að niðurstöðu í flestum aðstæðum. Þetta virkar mjög vel, en bregst þó samt stundum við furðu einfaldar aðstæður.
Geir Jón er hreint frábær lögreglumaður og megum vera mjög ánægð með hann. Hann hefur gert lögregluna töluvert mannlegri og er ekkert feiminn við að vera afalegur í sjónvarpinu og játa það (og sýna) að lögreglumenn eru manneskjur. Sem hann reyndar gerði á sama tíma á hinni stöðinni.
Það er kannski eins gott að þetta er þvættingur. Því að ef fólk yrði í raun ofbeldisfyllra á fullu tungli, yrðu mannlegu lögreglumennirnir okkar það þá ekki líka?