Borgar.net » politics
Opin gögn og endurnýtanleg
Við félagarnir tókum okkur til og opnuðum vef, opingogn.net, til þess að reyna að gera upplýsingar um opin gögn á Íslandi aðgengileg miðlægt. Hver sem er má bæta sinni vitneskju inn, og eitthvað er þegar farið að tínast inn.
Það leið ekki langur tími þangað til að ég fékk ábendingu í pósti um áhugaverða klausu í landslögum:
Stjórnvöld skulu birta á heimasíðu sinni lista yfir þær skrár sem hafa að geyma upplýsingar í þeirra vörslum sem heimilt er að endurnota, svo og þau skilyrði sem slík endurnot eru bundin.
Upplýsingalög, 1996 nr. 50 24. maí
Þetta er úr lögum um breytingu á upplýsingalögum, nr. 50/1996 sem tóku gildi 1. janúar 2007. Eitthvað er þessu ennþá ábótavant, eins og við er að búast. Það er rétt að benda á að stjórnvöldum er sjálfsagt að endurnýta þær upplýsingar sem safnast á opingögn.net, þær eru jú opnar.
Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þótt heimilt sé <acronym title="samkvæmt">skv.</acronym> upplýsingalögum að endurnýta tiltekin gögn, þá er ekki þar með sagt að það sé hægt. Fyrst þarf jú að komast í gögnin. Þeir þættir upplýsingarlaga sem opna fyrir endurnýtingu gagna stofnanna sem ekki fá undanþágu frá þeim, gefa þó engan rétt til aðgengi að þeim.
Glöggt dæmi um þetta er að finna í úrskurði Úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá 21. desember 2007:
Í 1. mgr. 24. gr. laganna segir að markmið kaflans sé að auka endurnot opinberra upplýsinga til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Samkvæmt 3. mgr. 24. gr. hefur umræddur kafli þó ekki bein áhrif á rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum. Þar segir að ákvæði kaflans gildi einvörðungu um endurnot fyrirliggjandi upplýsinga sem séu í vörslum stjórnvalda og almenningur eigi rétt til aðgangs að á grundvelli 3. gr. laganna eða annarra ákvæða sem veita almenningi slíkan rétt. Í skýringum við þessa málsgrein í frumvarpi því sem varð að lögum nr. 161/2006 er áréttað að ákvæði kaflans gildi “einungis um endurnot upplýsinganna en mæli ekki á neinn hátt fyrir um rétt til aðgangs að opinberum upplýsingum.”
Þetta þarf að laga. Það þarf að fjarlægja þessar undanþágur skóla, bóka- og skjalasafna, rannsóknastofnanna, ríkisútvarpsins, menningarstofnanna; Það þarf að fjarlægja ákvöður um upprunatilgreiningar og ábyrgðaryfirlýsingar; Það þarf að takmarka leyfi til gjaldtöku við einhver sértilfelli (ef einhver eru); Og það þarf að afnema ákvæði um vernd og gjaldtöku þeirra stofnanna sem rekin eru samkvæmt sérlögum.
Þannig breytum við þessari vannýttu skúffuauðlind í hagvöxt og kreppumeðal. Ég hvet lesendur sem þekkja ekki málið að lesa sér til, og kynna sér málstaðinn.
Hver á opinber gögn?
Kunningi minn, Hjalli, hefur verið að taka ögn af óverðskuldaðri gagnrýni fyrir að þurfa að framfylgja lögum um höfundarétt fyrir stofnun sem hann starfar fyrir. Hann er í þeirri óþægilegri stöðu því að á sama tíma og hann neyðist til þess að passa það að höfundarréttarvarin opinber gögn séu ekki afrituð, er hann í dag einnig ein háværasta rödd þess hóps sem vill sjá hið opinbera skapa sér opna stefnu að opinberum gögnum.
Eins er það kaldhæðnislegt að þeir sem hafa mestar áhyggjur af móðurmálinu, íslenskufræðingar, skuli vera skuldbundnir til þess að liggja á þeim gögnum sem best geta nýst í sköpun tóla eins og ókeypis villuleitarforrita, og þar með hlúð að tungumálinu.
Þetta á ekkert bara við um Íslenska Orðabók. Ég er viss um að margir Íslendingar kynnu að meta það að Google-maps kynni hnit og kennileiti í helstu borgum á Íslandi, eða hefði í það minnsta kortin inni svo notendur geti sjálfir sett inn kennileiti. Google verða auðvitað að fá gögnin einhver staðar frá, en þau, eins og Orðabók Háskólans eru lokuð, læst, og háð erfiðum notkunar samningum og/eða gjaldi.
Ég þekki það af eigin raun hversu ergilegt það er að komast ekki í svona gögn. Rímorðabókin mín líður fyrir það að engin nothæf frjáls íslensk orðabók er til.
Það er kannski heppilegt að þjóðskrá, bifreiðaskrá, og þessháttar persónutengd gögn séu ekki öllum gefin. En fyrir öll önnur gögn sem ekki koma einstaklingum við, eða eru ekki bundin lagafjötrum, er það beinlínis skylda Ríkissins að gefa almenningi sem greiðastan aðgang að.
Það rýrir hvorki gögnin né viðkomandi stofnanir að slík afrit séu gefin. Þvert á móti eykur það vegsemd og gildi stofnanna að vera í góðu sambandi við hópa og einstaklinga sem fást við nýsköpun. Það er vegna þess að notkun á svona gögnum varpar ljósi á villur eða gloppur í þeim, sem geta gengið sem lagfæringar eða tilkynningar til baka til stofnanna.
Það er algjör óþarfi að margir aðilar séu að keppa um framleiðslu á gagnagrunnum sem hið opinbera á nú þegar. Því hagnast allir á svona fyrirkomulagi, ef ekki peningalega, þá hreinlega í vinnu eða tímasparnaði. Í eins litlu samfélagi og okkar þá getur það skipt sköpum. Samanber hvernig á meðan Mál og Menning gefur út þægilegar kiljur af íslendinga sögum, þarf Námsgagnasofnun ekki að standa í því.
Það er, að ég tel, engin raunveruleg ástæða fyrir því að þessum gögnum er “haldið frá” almenningi. Það er einfaldlega engin mótuð stefna til. Ég veit fyrir víst að Orðabók Háskólans er alvarlega svelt tæknimönnum, og sennilega fé. Líkast til á það við um flestar þessar stofnanir. Ef tekin væri yfirlýst opin stefna á ríkisgögn þá mætti hugsa sér að þeir sem hagsmuni sjá í, eða hafa af, því að nota gögnin geti komið að því að hjálpa viðkomandi stofnunum við að koma þeim í útgáfu.
Það geta flestir, ef ekki allir, verið sammála um að þetta er góð hugmynd. En hvernig á að koma slíkri stefnu á? Einhverjir meðlimir <acronym title="Reykjavik GNU/Linux users group">RGLUG</acronym> og Wikipedia hafa stofnað <acronym title="Félag um stafrænt frelsi á Íslandi">FSFÍ</acronym>, Félag um stafrænt frelsi á Íslandi. Það hljómar eins og þrýstihópurinn sem vill taka á þessu máli. Það gæti verið góð hugmynd að flykkja liði undir hatt <acronym title="Félag um stafrænt frelsi á Íslandi">FSFÍ</acronym>?
Ég bendi á að Forsætisráðuneytið er þegar búið að láta kanna Opin hugbúnað og komast að þeirri niðurstöðu að hann geti verið góður valkostur sem “skili sparnaði og auknu rekstraröryggi”. Ég get því miður ekki skoðað hvað lögbundni staðallinn Íslenskar kröfur um upplýsingatækni hefur um málið að segja, því að hann er læstur bak við 4.353 kr.
Af samskiptum mínum við Ríkið og sveitarfélög hefur það verið ánægjulega áberandi að þau leitast við að nota opna staðla. En það er eins með Opinn hugbúnað og Gleðibankann, það dugir ekki að taka bara út, það þarf líka að leggja inn.
Að standa við orð sín
Er þetta nú ekki til aðeins of mikils ætlast:
Náttúruverndarsamtök Íslands fara fram á það að ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar og forsætisráðherra standi við orð sín [...]
Úr frétt af visir.is
Hagfræði fyrir vinstrimenn
Nú virðist allt benda til þess að fram undan sé ögn af efnahagskreppu. Það gæti verið pínu flókið fyrir þá sem ekki skilja efnahagsmál að átta sig á því hvernig þetta gat gerst þrátt fyrir að hægri íhaldsmenn – sem allir vita að eru eina stjórnmálafólkið sem skilur efnahag og hagfræði – hafa verið við stjórnvöllinn áratugum saman.
Til þess að fólk geti glöggvað sig á þessu hef ég búið til þessa einföldu uppflettitöflu:
Hægristjórn við völd
Vinstristjórn við völd
Góðæri
Með góðri efnahagsstjórn byggðri á traustum grunni mikillar viðskipta og hagfræðiþekkingar hefur hægri mönnum tekist að framkalla hagsældina.
(Ef þetta mundi einhvern tímann henda:) Góðærið á vitaskuld alþjóðleg upptök og vinstrimenn eru að gera sitt besta til þess að skemma allt saman.
Kreppa
Kreppan á upptök í alþjóðahagkerfinu og það er ekkert við þessu að gera. Meira að segja vitrustu menn í útlöndum sáu þetta ekki fyrir.
Vinstrimenn mættu buxnalausir í vinnuna, hækkuðu skatta, og rústuðu þannig hagvextinum og steypu öllu í glötun (klaufarnir!).
Þetta virkar sumsé eiginlega nákvæmlega eins og bensínverð. Mínus bílarnir.
Ég vona að bæði hægrimenn sem voru búnir að gleyma þessu, svo og þeir vinstrimenn sem kunna yfirleitt að lesa, hafi haft gagn af.
Kristileg kaldhæðni
Hvernig var hún aftur, þessi gullna regla?