Borgar.net

— Jump to the navigation index

þriðjudagur, 22. apr 2008

Mjólkuróþol og kostnaður þess

Ég var að taka á móti sendingu af mjólkur­mót­eiturs­pillunum sem ég háma í mig til þess að koma í veg fyrir einkenni mjólkuóþols. Eins og áður hefur komið fram panta ég pillurnar frá bandaríkjum í gegnum netið.

Eitthvað var ég smeikur við að núverandi efnahagsástand hefði áhrif á kostanaðinn í þetta skiptið. Svo reyndist vera.

Svo skemmtilega vildi til að ég varð uppiskroppa með töflur á meðan ég var að bíða eftir sendingunni, og í einhverju hádeginu neyddist ég inn í Lyfju á laugarvegi. Ég gapti þegar afgreiðslukonan hljómfærði verðið og át það upp eftir henni: 4.483 krónur.

Þær amerísku hafa hins vegar lækkað frá því að ég reiknaði þetta saman síðast. Það er af því að ég pantaði 5 pakkningar sem lækkaði hlutfall sendingarkostnaðar í heildarverðinu.


Svona standa stigin í dag:

Lactasin Lactaid
“Kraftur” pr. pillu 3300 9000
Pillur pr. pakka 100 60
Verð pr. pakka 4483 kr. 1994 kr.
Verð pr. pillu 44.83 kr. 33.2 kr.

Þetta þýðir, dömur mínar og herrar, að mér hefur tekist að lækka kostnaðinn á bandarísku pillunum um 11% á meðan það eina sem íslensku apótekin hafa uppá að bjóða hefur hins vegar hækkað um 60%.

Published: 22. 4. 2008 23:25. Tagged: , , .