Borgar.net

— Jump to the navigation index

mánudagur, 2. apr 2007

Stjórnmál og tilfinningar

Einar Örn tók vasklega á lyklaborðinu í dag og hamraði saman þessa fínu færslu. Mæli með þeirri lesningu. Sérstaklega tilvitnunum sem fylgja. Sú besta að mínu mati:

Stjórnmálamenn eru kosnir til þess að stjórna. Þegar þeirra nýtur ekki lengur við tekur múgur götunar að sér stjórnina.

Ég veit ekki hver mælti þessi orð, en þau segir svo margt um stjórnmálaumræðuna.

Þetta er greinilega mælt af einhverjum sem skilur ekki lýðræðiskerfið okkar. Það er sama fólkið sem tekur ákvarðanir um hverjir stjórna landinu og hvort það megi stækka álverið í bænum. Hví getur múgurinn dæmt um annað en ekki hitt?


Upplifun verður að reynslu. Reynsla verður að tilfinningum. Skoðanir og ákvarðanir stjórnast svo af þessum trausta grunni. Réttlætingar og rökstuðningur fá ekki einu sinni að fara í röðina fyrr en eðluheilinn er búinn að setja stefnuna.

Þegar maður áttar sig á því að flestar ákvarðanir manns eru teknar áður en maður rökfestir þær fyrir sér. Þá skilur maður hvers vegna fólk hegðar sér svona heimskulega þegar það verður ástfangið. Þá skilur maður líka hvernig það er að börn eiga oft erfitt með að smíða vatnsþéttar réttlætingar á ákvörðunum sínum. Og maður fattar djókinn við stjórnmálaumræðuna.

Published: 2. 4. 2007 1:29. Tagged: , , .