Borgar.net

— Jump to the navigation index

laugardagur, 30. des 2006

Flottur fídus

Svo virðist sem að í íslensku nútímamáli sé að festast í sessi notkun á orðinu fídus þegar átt er við tiltekna virkni eða það sem í ensku væri væntanlega kallað feature.

Ég hef búið nógu lengi á Íslandi til þess að vita það fullvel að einn einstaklingur getur algjörlega upp á sitt einsdæmi valdið svona löguðu hér. En hvernig gat þetta samt gerst? Er virkilega enginn á landinu sem sér neitt athugavert við þetta?

Ekki að ég vilji eitthvað vera að mála mig sem einhvern málhreinsunarsinna. Ég sletti ensku töluvert meira en nauðsynlegt er. Ég hef bara séð fólk frá enskumælandi löndum algjörlega missa það yfir þessu.

Uppfært (7.1.2007):

Það breytir auðvitað engu gagnvart enskumælandi, en við virðumst hafa þetta úr dönsku. Svo það er þá allavega hægt að kenna dönum um ef einhverjum finnst þetta asnalegt.

Published: 30. 12. 2006 1:51. Tagged: .