Var það eitthvað fleira?
Ég skil ekki alveg þessa áráttu starfsfólks lyfjaverslana að setja hluti í bréfpoka. Alveg sama hvað verslað er mikið, og sama hver varningurinn er, alltaf skal setja þetta í bréfpoka. Er þetta það sem kallað er “gamli tíminn”
eða er þetta bara til þess að fólk þurfi ekki að skammast sín þegar það kaupir herpeskremið?