Borgar.net

— Jump to the navigation index

mánudagur, 16. okt 2006

Ný síða (eða þannig)

Í tilefni af því að ég er nú (þeas. í dag) orðinn “svo gamall sem af grönum má sjá”, nánar til tekið þrjátíu-og-eins, eða “kominn á fertugsaldurinn” eins og margir halda að sé fyndið að segja… er ég búinn að fá mér örlítið virðulegri heimasíðu.

Ég á reyndar eftir að laga nokkra hluti ennþá: Internet Explorer veit ekkert hvað hann á að gera við þetta, einhverjir linkar eru ekki réttir, tungumál eru í klessu (hvar er fína íslenskan mín?), ég er ósáttur við leitarboxið í hausnum, eitthvað þesslegt. Ég laga þetta þegar ég hef tíma. Annars er ég að verða frekar sáttur við vefunina á þessu.

Hugmyndin með útlitið var að gera eitthvað látlaust og hvítt. Þetta virkar reyndar lang best í mac, því það munar töluverðu á leturmeðhöndlun í mac og á öðrum kerfum. Vefunin á þessu er þannig að því betri stuðningur við CSS, því meira færðu. Svo best er að horfa á þetta í Firefox á Mac og verst er að nota IE6 á Windows. Allt er optímerað fyrir textavafra eins og Lynx, skjálesara, prentun, o.s.frv.

Grindin á skjalinu er einhverskonar samsuða af aðferðafræðinni úr vinnunni, kenningum stóru CSS hetjanna, og einhverrar sérvisku í mér. Ég vildi t.d. að það væri hægt að smíða híarkíst efnisyfirlit (document outline) af skjalinu út frá því hvernig titla (heading) tög eru notuð.

Þessi glæsilega mynd af mér sem ég hef notað í hausinn var tekin í vinnunni af Sigurjóni og er sennilega skásta mynd sem af mér hefur verið tekin. Sú fyrsta þar sem ég er ekki með lokuð augu og opinn munn.

Ég smellti einnig inn WordPress viðbót sem ætti að fara sem víðast, það er viðmót á stillingar.is græjuna hans Más. Í framtíðinni geta þá aldraðir foreldrar mínir lesið síðuna mína gleraugnalausir (grínlaust).

Ég tek kannski nánari krufningu á þessu á ensku þegar ég gef út WordPress theme fælana fyrir þetta. Læt þetta þó duga í bili.

Published: 16. 10. 2006 2:09. Tagged: , , , , .