Borgar.net

— Jump to the navigation index

sunnudagur, 21. maí 2006

Helgin (yfirlit)

Ég er búinn að eyða helginni í að pínpússa ýmsa hluti sem hafa verið að angra mig.

Þetta byrjaði á því að ég svissaði öllum control tökkunum á iBókinni minni svo ég gæti vélritað. Bjarni benti mér á að þetta væri auðvelt. Svo nú get ég vélritað aftur! Húrra!

Næst á dagskrá var að laga terminalinn fyrir OS X, en hann kemur asnalegur úr kassanum. Sem betur fer er auðvelt að breyta page-up/page-down og del vs. backspace ruglinu í eitthvað sem meikar sens. Reyndar er það yfirleitt óútreiknanlegt hvenær backspace takkinn á Mac er backspace og hvenær hann er delete.

Keypti mér annars Textmate. Það mun vera í annað skipti sem ég kaupi mér forrit. Mér sýnist þetta vera alveg peningana virði. Ég stal hvort sem er flestum öðrum forritum sem ég er að keyra.

Ég fór einnig í gegnum backup málin á vefþjóninum og náði að minnka backup fælinn um næstum 90%. Þetta er leiðindaverk sem ég hef látið bíða allt of lengi.

Annað sem er í fréttum er að ég er að teikna nýtt útlit á þessa síðu og ég er gjörsamlega farinn í bakinu (ok, ekki gjörsamlega en þetta er samt vont). Sjónvarpið okkar er líka dautt. Sem er óheppilegt því að ég get auðvitað ekki komið því eitt né neitt ef ég get ekki lift því. :-)

Það bauð mér enginn í Eurovisionpartí í ár (sem verður að teljast svolítil lækkun frá þessum 7 – 8 í fyrra). Er það merki þess að ég eigi ekki lengur neina vini eða að vinir mínir hafi ekki nennt að horfa á keppnina?

Published: 21. 5. 2006 19:06. Tagged: , .