Lögfræðihjálp
Ég er, eins og sjá má ef vel er leitað á forsíðu [[http://undraland.com|undralands]] að reyna að koma upp frjálsri opinni orðabók á netið. En nú þarf ég að biðja um aðstoð.
Þannig er að áður en ég get opnað fyrir það að hver sem er geti gert breytingar á innihaldinu (eins og stefnan er) þarf það að vera á tæru hvaða eignaréttur er á því sem í orðabókinni er.
Best væri sennilega að gera orðabókina að séreignastofnun og láta allt sem í henni er tilheyra orðabókinni, þannig mætti breyta um leyfi eða skilmála seinna, ef það þyrfti að rýmka þá.
Orðasafnið sem myndast vildi ég samt helst að væri almenningseign íslensku þjóðarinnar.
Er ekki einhver með lögfræðiþekkingu sem er til í að fara yfir þessi lögfræðilegu atriði með mér og hjálpa til við að skrifa lagamálið?
Það er ekki fyrir mig – það er fyrir íslenskt mál og þjóðina alla.