Borgar.net

— Jump to the navigation index

þriðjudagur, 14. jún 2005

Póstur frá Gautaborg

Í gær fékk ég bréf. Alvöru pappír og allt. Það var umslag límt saman úr vinnubókarörk. Inní var lítill miði sem þakkaði mér fyrir það sem ég [[http://borgar.undraland.com/s/2005/05/31/18.08.03/|hafði gert]] ásamt samlímdu pappírshulstri málað röndótt sænsku fánalitunum með vaxlitum.

Röndótta hulstrið innihélt geisladisk fullan af [[http://borgar.undraland.com/s/2005/05/24/12.13.40/|sænskri MP3 tónlist]]. Hér er listinn yfir það sem ég fékk:

* Bob Hund – Jag rear ut min själ, allt ska bort!
* Håkan Hellström – Känn Ingen Sorg För Mig Göteborg
* Kent – Vapen och Ammunition
* Nationalteatern
* Sagor & Swing – Orgelfärger
* Teddybears STHLM – rock’n'roll highschool
* The Knife – Deep Cuts
* Visor

Flest af þessu er nokkuð gegnsætt nema kannski ”Visor” sem er sumsé blanda af sænskri vísnatónlist. Ég er rétt byrjaður að kafa í þetta og skemmti mér konunglega. :-)

Published: 14. 6. 2005 17:58.