Borgar.net

— Jump to the navigation index

fimmtudagur, 9. jún 2005

Góðar bækur og vondar bækur

[[http://unnur.klaki.net/mind/entry/1118276434.html|Mamma veit allt best]]. Ég er reyndar tilbúinn til þess að kalla DaVinci Lykillinn bókmenntalegt skópvatn andskotans.

Ég var reyndar búinn að tjá mig um þetta í lokuðum færslum áður [[http://borgar.undraland.com/s/2004/12/25/22.39.37/|[1] ]] [[http://borgar.undraland.com/s/2005/01/06/18.08.02/|[2] ]]. Ég er svoldið bitur yfir því hvernig farið var með listasöguna (og hvað þetta er djöfullega heimskuleg þvæla).

Ég fór að velta því fyrir mér hvort það gæti verið að það væri að fólk sem læsi lítið að öllu jöfnu félli fyrir þessu vegna þess að bókin gerir jú það sem bækur gera. Það er kannski sterkari reynsla fyrir þá sem ekki lesa bókmenntir reglulega.

Það er þó kannski ekki hægt að setja þetta upp svona? Það eru jú nokkrir sem ég þekki sem lesa sig í gegnum gríðarlegt magn af lélegum bókmenntum. Rétt eins og margir horfa bara á dagskránna til þess að horfa á dagskránna.

Hvorum hópnum er betur treystandi til þess að segja þér hvað er gott sjónvarpsefni? Þeim sem horfa alltaf á alla dagskránna eða þeim sem horfa bara á einstöku bíómynd?

Ég ætla allavega af fenginni reynslu að halda áfram að vera sami þverhausinn og lesa bara íslendingasögurnar aftur og aftur þangað til að ég drepst.

Published: 9. 6. 2005 18:11. Tagged: , .