6230i
Ég er búinn að fá mér [[http://www.nokia.com/nokia/0,,69498,00.html|nýjan síma]]. Hann hatar mig og ég á enga vini lengur af því að ég er ekki með símaskrá.
Ég er sáttur við að hann sé með góðan vafra en af hverju tekur hann ekki við ”handheld” stílblöðum heldur rembist alltaf við að vera alvöru vafri? 208*208 pixla vafri. ”Hah!”
Hvernig virkar svo eiginlega tölvupósturinn á þessu helvíti? Á einhver svona síma sem er búinn að komast að því hvernig maður getur lesið tölvupóst?
Íslenska T9 orðabókin er snilld, en af hverju er hún að reyna að hjálpa mér að senda íslenska sérstafi í gegnum SMS kerfi sem virðast ekki ráða neitt við neitt?
Hvenær hætta símar að vera svona mikið drasl og hvers vegna er ég að eyða svona miklum peningum í raftæki sem endist í 2 ár. Ekki mundi ég borga þessar fjárhæðir fyrir örbylgjuofn og þó á ég von á því að slíkar græjur endist mun lengur…
1.3 megapixel myndavél er u.þ.b. það eina sem hann hefur fram yfir gamla K700i símann sem einhver fávitinn stal af mér. Reyndar grunar mig að nýtt minniskort og MP3 spilun muni fljótlega verða best í heimi… en akkúrat núna er það ekkert þannig.
Ætli maður neyðist ekki til þess að lesa leiðbeiningarnar. Það er samt eiginlega ekki alveg nógu karlmannlegt athæfi fyrir mig.