Borgar.net

— Jump to the navigation index

föstudagur, 18. mar 2005

Bú fokkíngst hú!

Vinnutölvan mín gafst upp í dag og sama hvað ég reyni þá er ég fastur í Windows XP Repair Install lúppu(tm). Það er sama hvað ég geri, vélin reynir að halda áfram að “gera við kerfið” og endurræsa eftir svona 5 mínútur. Frrrrábært! Ef ég kynni bara að slökkva á þessu. Þá gæti ég kannski gert eitthvað viti til þess að laga þetta. :-P

Ég er kominn á aðra vél í dag, sem hefur auðvitað ekki nein forritunarumhverfi eða nein af þeim tólum sem ég er vanur að nota frá degi til dags. Ég er eiginlega alveg lamaður ef ég hef ekki [[http://www.chami.com/html-kit/|HTML Kit]], [[http://www.foobar2000.org/|Foobar2000]], og [[http://www.mozilla.org/products/firefox/|Firefox]]. Svo þarf maður auðvitað [[http://www.chiark.greenend.org.uk/~sgtatham/putty/|SSH]], [[http://winscp.net/eng/download.php|SCP]], og [[http://www.tortoisecvs.org/|CVS]] clienta. Þá fyrst er maður aðeins farinn að gera eitthvað vitrænt.

Það er samt alltaf svoldið óþægilegt að vera að subba svona út vélar um alla skrifstofuna. Hvað hefur venjulegt skrifstofublók að gera við svona verkfæri? Ég held að ég verði bara að koma mér upp einhverskonar umhverfi þar sem ég get keyrt þetta allt af lausum diski eða eitthvað… Spurning bara hvort að ég þarf ekki alveg [[GNU]]/[[Linux]] ef ég vil geta notað fullkomið [[http://en.wikipedia.org/wiki/LAMP|LAMP]] umhverfi líka. :-)

Published: 18. 3. 2005 13:55.