Borgar.net

— Jump to the navigation index

mánudagur, 31. mar 2003

Uppgjöf eða þráhyggja?

Það lítur ekki út fyrir að RSS lesarinn minn ætli að verða að veruleika. Ég er búinn að vera að klóra mér í hausnum yfir þessu apparati í allan dag. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vill hann éta 10 meg af innra minni. Það er fullkomlega óásættanlegt, sérstaklega fyrir forrit sem á að vera í bakgrunni flestum stundum.

Ég er búinn að vera að gera hverja tilraunina á fætur annarri og hef ekki fengið svo mikið sem ímyndaða vísbendingu að því hvað er að. Á ég að klára þetta í von um að rekast á gallann seinna eða á ég bara gleyma þessu?

Published: 31. 3. 2003 23:09. Tagged: .