Borgar.net

— Jump to the navigation index

föstudagur, 28. mar 2003

Analblaster.com

Ég var aðeins að spjalla við [[http://helga.undraland.com|Helgu]] á MSN og segja gamlan brandara í milljónasta skipti: Þegar hún benti mér á [[http://www.starpulse.com|síðu]] með fullt af desktop veggfóðri sagðist ég fá mín á [[http://www.analblasters.com|analblasters.com]].

Ég er búinn að vera að nota [[http://www.analblaster.com|analblaster.com]] í c.a. ár sem svona stereotýpíska klám-perversjón lénið. Það hvarlaði allt í einu að mér að það væri kannski góð hugmynd að athuga hvort þetta lén væri til. Í einni angistarfullri andrá sá ég fyrir mér vini mína að athuga hvað væri að finna á þessari slóð sem ég vísa alltaf í… og að þar væri eitthvað afskaplega sjúkt! Það kom í ljós að þar er nákvæmlega ekki neitt… ennþá…

Ég þarf að fara að uppfæra skráninguna á undraland.com og ég er að hugsa um að kaupa spottið í leiðinni.

”’Uppfærsla:”’ Ég keypti aldrei lénið því að einhver andskoti hafði neglt það á undan mér. Ég hef lénabraskara grunaða um að mónítora DNS þjóna og mun fara varlegar með svona hluti í framtíðinni.

Published: 28. 3. 2003 23:15.