Borgar.net

— Jump to the navigation index

þriðjudagur, 11. jún 2002

Meira Gong…

Var að horfa á fréttirnar, hreint ótrulegar! Stöð 2 sýndi m.a. myndir af öllum landskunnum íslendingum sem stundað hafa ”tai-chi”. Er tilgangur þeirra einhver annar en að bendla þessa saklausu íþróttamenn við [[http://www.fofg.org|Falun Gong]]? Hvernig dirfast þeir að vera svona heimskir?

[[http://www.ruv.is|RÚV]] var með mun betri fréttir, þá sérstaklega var kastljósið spennandi. Viðtal við [[http://www.china-embassy.is/eng/c5533.html|Wang Ronghua]], sendiherra Kína, var vitlaust þýtt og frábærlega mistúlkað af fréttamönnum. Wang karlinn dældi auðvitað bara út offísíal viðhorfum Kína í þessu máli, enda hvað annað á hann að gera? Maðurinn er í vinnunni.

Hæstvirtur dómsmálaráðherra er augljóslega óhæf til að tala í sjónvarpi (hvað þá að vera ráðherra). Lítið annað um hana að segja.

Persónulega hef ég ekki séð neitt sem afsakar meðferð kínverskra yfirvalda á Gongliðum. Þeir kveikja kannski í sér, hengja sig og/eða hætta að fara til læknis, en þá fækkar þeim líka bara? ;-)

Published: 11. 6. 2002 21:47. Tagged: , , , , .