Linux & PHP
Eyddi fyrrihluta dags í að púsla saman nýrri vél sem á að verða ”linux” fikt vélin mín. Það er löngu orðið tímabært að ég læri að vinna á ”linux” og nú er semsé það rólegt hjá mér að ég get það.
Gúrúið í næsta húsi lánaði mér ”Red-Hat” diska (en mælti samt með ”SuSE”). Nú er ég búinn að reyna (árangurslaust) að fá það til að virka í nokkra klukkutíma og er hættur í dag. Það er auðvitað ekkert skrítið að fólk sé ekki að færa sig yfir á ”linux” ef það er svona mikið vesen að koma því upp?
Ef ég ætla að verða alvöru nörd verð ég líka að fara að skrifa vefina mína í ”PHP”. Til að gera eitthvað vitrænt í dag setti ég upp ”PHP” fyrir [[http://www.microsoft.com/windows2000/technologies/web/default.asp|IIS]] á lappanum áðan. Ég er að spá í að byrja á því að þýða þetta bloggsystem mitt yfir í ”PHP”, bara svona til að læra á þetta…
Ég er allavega búinn að skrifa nokkur föll sem líkja eftir ”ASP” skipunum sem ég nota mikið svo að ég er sæmilega sáttur við sjálfan mig eftir daginn.